þriðjudagur, nóvember 22, 2005
mánudagur, nóvember 21, 2005
fimmtudagur, nóvember 17, 2005
Bara smá fréttos af okkur systrum.
Það er búið að vera frekar mikil leti vika eitthvað hjá okkur, vakna frekar seint og horfa á tv langt fram eftir öllu. Vikan byrjaði samt mjög vel á sunnudeginum þá var alveg stefnt fast að því að vakna nú á siðlegum tímum alla vikuna og fara svo í eins og létta morgungöngu, þar átti nú að rölta af sér eins og nokkur kíló og fá sér svo hollan og góðan morgunmat........ ennnnnnnn það er komin fimmtudagur og ég man ekki eftir því að hafa skellt mér í hressa morgungöngu þessa vikuna. Enda kanski smá erfitt að koma sér fram úr núna þar sem það er farið að kólna alveg all svakalega og ég hef sofið í náttfötum sl. 2 nætur.... kyndingin ekki alveg upp á marga fiska hérna en ég held að það þurfi bara kanski að tappa aðeins af ofnunum og þar sem 2 kvennmenn búa hér þá höfum við ekki alveg áttað okkur á því hvernig það er gert?? Vonum að þeir 2 karlmenn sem koma hér í heimsókn í byrjun des geti hjálpað okkur með það :-)
Annars hefur það bara verið vinna og smá bókalestur í vikunni og svo var fundur hjá ísl.félaginu í gær og er verið á fullu að undirbúa jólamarkaðinn sem verður haldinn laugardaginn 26. nk.
Dagskrá næstu daga samanstendur svo af vinnu, vinnu, vinnu og reyna að lesa sér aðeins til í financial management þar sem það þarf víst að skila eins og einu stk. verkefnos á mánudaginn. Svo ætla Sveinn, Sædís og Dröfn að koma til okkar í mat á laugardagskvöldið þar sem þau eru stödd hér í borg og verður fínt að fá smá familíustemmingu í íbúðina.
Ætla að láta þetta duga í bili.... vona að ég verði með fleiri fréttir næst og kanski að það verði búið að taka eins og allavega eina morgungöngu
Hilsen frá okkur systrum.

sunnudagur, nóvember 13, 2005

Ekkert jólahlaðborð í kvöld þar sem ósköp rólegt föstudagskvöld hjá okkur systrum fór aðeins úr böndunum í gær. En það var nú bara aðeins til að lífga upp á skammdegið. Þannig að núna hefur maður verið að eyða laugardagskvöldinu í lestur á mjög svo skemmtilegu efni um the danish economy. Já já já geri aðrir betur..... Betty er á djæfi í bænum þar sem hún fór að hitta hana Ólöfu sem hún var að vinna hjá og býst ég við að hún sé þar í góðu yfirlæti ef ég þekki rétt til. En ég var nú aðeins að dunda mér áðan við að svara svona ansi skemmtilegum spurningalista sem datt upp í hendurnar á mér og ykkur til gagns og gamans þá læt ég hann rúlla hér......
1. HVENÆR VAKNARÐU Á MORGNANNA? Það er nú góð spurning, fer allt eftir veðri og vindum hverju sinni. Hef þó verið frekar morgunlöt upp á síðkastið og snúsarinn vel nýttur.
2.EF ÞÚ GÆTIR SNÆTT HÁDEGISVERÐ MEÐ EINHVERJUM FRÆGUM, HVER VÆRI ÞAÐ? Ætli það yrði nú ekki bara hún Áslaug mín, það er alltaf svo helvíti erfitt að ná þeirri busy konu í hádegisverð:-)
3. GULL EÐA SILFUR? Gull verð ég að segja enda hefur smekkur minn oftast legið í dýrari kantinum.
4. HVAÐ VAR SÍÐASTA MYNDIN SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ? In her shoes.... ágætis ræma en bjóst við meiru.
5. UPPÁHALDS SJÓNVARPSÞÁTTURINN? At the moment þá er það víst Paradise, missi ekki af þætti þetta er orðið svo spennandi sko, one tree hill, Lost og Desp.housew.
6. HVAÐ BORÐARÐU Í MORGUNMAT? Special K með smá cheeriosi út á og skummetmælk.
7. HVAÐ LANGAR ÞIG AÐ GERA ÞEGAR ÞÚ ERT ORÐINN STÓR? Já það eru nú enn nokkrir möguleikar í stöðunni og maður ekki orðin nema 27 ára gömul... hvenær ætlar maður að fullorðnast:-) En það verður trúlegast eitthvað sem tengist hönnun og einhverri sköpun, helst langar mig að verða alveg sjúklega fær innannhússhönnuður með eitthvað svona auka design on the side. Þið hringið bara í mig eftir svona 5-7 ár þegar ykkur vantar einhvern til að breyta og bæta hjá ykkur, það verður vonandi einhver lítill krakkaormur sem svarar í símann.... nema ég ætli að verða alveg endalaust geld:-)
8. GETURÐU SNERT NEFIÐ Á ÞÉR MEÐ TUNGUNNI? Nei það get ég nú ekki en hef skemmt mörgum við tilraunir til þess.
9. HVAÐ VEITIR ÞÉR INNBLÁSTUR? Það getur verið allt frá ekki neinu upp í barasta allt.
10. HVAÐ ER MIÐNAFNIÐ ÞITT? Björg
11. STRÖND, BORG EÐA SVEITASÆLA? Já já þetta er nú ekki einu sinni spurning... það er ströndin fyrir mína.
12. SUMAR EÐA VETUR? Sumar... þoli ekki kulda, frost og allt sem fylgir vetrinum nema rökkrið... það getur verið svolítið rómó stundum.
13. UPPÁHALDS ÍS? Þar sem ég var að enda við mitt persónulega met í ísáti rétt í þessu þá er það hérna í Danaveldinu, svona ananas ísklaki með venjulegum ís innaní. En yfirhöfuð er það ekkert sem toppar gamla ísinn í melaísbúðinni í vesturbæjos.
14. SMJÖR, SALT EÐA SYKUR Á POPP? Saltið og smjörið svona spari.... það er voa voa gott:-)
15. UPPÁHALDS LITURINN ÞINN? Já í augnablikinu er ég komin með voða æði fyrir svona natúr bleikum lit... ekki alveg að fatta það þar sem ég hef aldrei klæðst bleiku á ævinni. En sjúklega mikið inn hjá mér núna. Uppáhalds, uppáhalds litur verður að vera rauður held ég.... eða svartur.
16. UPPÁHALDS BÍLLINN ÞINN? Pass... er voðalega lítil bílakona. Vil hafa þá sem venjulegasta en samt þægjó. Er ekki þessi sportbílatýpa verð ég að segja.
17. HVAÐ FINNST ÞÉR BEST AÐ BORÐA Á SAMLOKU? Stundum skinku og ost - stundum grænmeti - stundum tuna - en aldrei, aldrei helvítis mysinginn eða sardínur.
18. HVERT FÓRSTU SÍÐAST Í FRÍ? Frí já.... það var ansi langt hjá mér í vor og sumar hér í Kóngsins Köben. En annars fyrir utan ísl og danm. þá var síðasta FRÍ á Mallorca í 3 vikur með honum Tóta mínum í fyrra.
19. HVAÐA PERSÓNUEIGINLEIKA FYRIRLÍTURÐU? Er ekki hrifin af þeim sem geta ekki verið hreinskylnir og heiðarlegir annars er enginn víst fullkominn.
20. UPPÁHALDSBLÓM? Blóm - Er það ekki þetta sem deyr alltaf???
21. EF ÞÚ YNNIR STÓRA POTTINN Í LOTTÓINU, HVERSU LENGI MYNDIRÐU BÍÐA ÁÐUR EN ÞÚSEGÐIR FÓLKI FRÁ ÞVÍ? Já ég býst við að það yrði ekki lengi því ég verð alltaf svo spennt að ég væri örugglega búin að segja frá því áður en það myndi gerast.... sem ég er nú alltaf að bíða eftir... en það gengur eitthvað hægt. Sérstaklega þegar maður spilar ekki með sko.
22. SÓDAVATN EÐA VENJULEGT VATN? Venjulegt takk.
23. HVERNIG ER BAÐHERBERGIÐ ÞITT Á LITINN Já það er hvítt held ég... annars er það svo lítið að maður tekur eiginlega ekki eftir litnum á því.
24. HVAÐ ERU MARGIR LYKLAR Á LYKLAKIPPUNNI ÞINNI? 3 - og ég kann á þá alla.
25. HVAR ÆTLARÐU AÐ EYÐA ELLINNI? Á ströndinni takk, koma svo einstaka sinnum í heimsókn á klakann yfir sumartímann, skreppa til eyja og anda að mér sjávarloftinu og kíkja svo í sérrýpartý hjá Eygló í Grænumörkinni. Þið hin sem hafið ekki enn boðið mér í sérrýpartý í ellinni, vinsamlegast sendið boðskort sem fyrst. Maður verður núað geta hlakkað til einhvers.....
26. GETURÐU JÖGGLAÐ? what???
27. UPPÁHALDS DAGUR VIKUNNAR? Helgin er einn dagur hjá mér hún er alltaf svo fljót að líða.
28. RAUÐVÍN EÐA HVÍTVÍN? Hvítt.
29. HVERNIG EYDDIRÐU SÍÐASTA AFMÆLISDEGI? Ohhmygoooooh...... manus það ekki, fékk allavega pakka það er það eina sem ég man.
30. ERTU MEÐ LÍFFÆRAGJAFAR KORT? Nei bara með VISA.
31. HVORT MYNDIRU VILJA EIGNAST STRÁK EÐA STELPU? Stelpu held ég... en strákurinn er alveg velkominn líka.
32. HVAÐ KEMUR ÞÉR Í GÍRINN? At the moment... white russian með mælk i stedet for fløde. Fer samt aðeins eftir því hvaða gír er verið að tala um hér !!
33. ERTU FEMINSTI? Nei svoleiðis rauðsokkur fara voðalega í taugarnar á mér.
34. FLOTTASTI LÍKAMSHLUTINN Á HINU KYNINU? Heildarpakkinn held ég...
35. ELSKARÐU EINHVERN? Já alveg rosa mikið og marga.
Já svona fer fyrir manni þegar maður á að vera að læra...... manni dettur í hug að gera allann fjandann nema að lesa helv.... bókina.
Ég held að ég segi þetta gott að sinni, er að spá í að fara og fá mér smá nachos til að hafa nú eitthvað að mönsa yfir lestrinum.
Ástan
miðvikudagur, nóvember 09, 2005
I love verkefnos
Jæja....
Það er búið að vera lítið um gleði og geim hjá okkur systrum frá því um helgina. Eintóm vinna og verkefnaskil hjá mér. Á að skila 2 verk á föstudag og svo próf á mánudag, þarf einnig að koma fyrir smá vinnu á morgun frá 15-22. Ég náði nú að rumpa af eins og öðru verkefninu í dag, tók svo uppvaskið og kokkaði þessar fínu pítur handa okkur systrum. Nú er maður svo að reyna að koma sér í gírinn að byrja á verkefnos nr. 2 því ég þarf helst að vera búin með það þegar ég fer í vinnu á morgun kl 3 því það er svo ansi spennó þáttur af paradise hotel þegar maður kemur heim úr vinnunni
já já maður má nú ekki missa af því.
Svo er maður víst að fara í julefrokost með vinnunni á laugardaginn en það fer nú eftir því hve vel gengur að komast yfir efnið fyrir prófið fram að þeim tíma. Hver veit nema maður liggi bara í kaffinu fram til klukkan 3 á laugardag, fari svo yfir í pillann..... og málið er dautt!!
Kys og kram... Ásta
Það er búið að vera lítið um gleði og geim hjá okkur systrum frá því um helgina. Eintóm vinna og verkefnaskil hjá mér. Á að skila 2 verk á föstudag og svo próf á mánudag, þarf einnig að koma fyrir smá vinnu á morgun frá 15-22. Ég náði nú að rumpa af eins og öðru verkefninu í dag, tók svo uppvaskið og kokkaði þessar fínu pítur handa okkur systrum. Nú er maður svo að reyna að koma sér í gírinn að byrja á verkefnos nr. 2 því ég þarf helst að vera búin með það þegar ég fer í vinnu á morgun kl 3 því það er svo ansi spennó þáttur af paradise hotel þegar maður kemur heim úr vinnunni
já já maður má nú ekki missa af því.Svo er maður víst að fara í julefrokost með vinnunni á laugardaginn en það fer nú eftir því hve vel gengur að komast yfir efnið fyrir prófið fram að þeim tíma. Hver veit nema maður liggi bara í kaffinu fram til klukkan 3 á laugardag, fari svo yfir í pillann..... og málið er dautt!!
Kys og kram... Ásta
mánudagur, nóvember 07, 2005
Helgin sem leið í máli og myndum...
Staðreyndir helgarinnar:
*Jólalestin kom á föstudaginn kl 20:59 (Tuborg jólabjórinn)
*Ég var heima ein brunarúst eftir tilraun til að ná grámyglulitnum af andlitinu á mér, þurfti hreinlega að sópa sjálfri mér út úr ljósabekknum.
*Baddý fékk sér jólabjórinn að sjálfsögðu.
*Vinna laugardag 12-17.
*Stelpu-sushi-partý á lau.kvöld fyrir Sálina á K.M Klausens Gade.
*Sálin á Vega... bara íslenskt sveitaball með sveittum og blindfullum íslendingum. Soldið súrt en bara gaman.
*Það var tekin ljómandi góð kóræfing í strætó á leið á Vega.
*Lestin er að KOMA.......
*Ég stútaði dömunum í partýinu í drykkju á hvítum rússa.... en með mjólk sko... rjóminn er svo helvtíti fitandi.
*Einn Durum rann ljúflega niður kl. 04:15 á Istegade ....... en það var allt í góðu... "hann er sko í hverfinu".
*Vinna sunnudag 13:30 - 17. Leifði mér að mæta aðeins seint í dag sökum hovedpine.
*Smá þynka í vinnunni en það slapp ótrúlega vel.
*Harðsperrur í öklunum ef það er nú til.... ætlaði að vera ótrúleg pía í gærkv. og setti á mig hælaskó sem ég hef ekki gengið á í þónokkurn tíma. Beauty is pain my friend!!
*Bettý hjá Oleé..... og ég alsæl með að geta stolist til að vera í notalegu inniskónum hennar á meðan.
*Popp eða nachos????
*Malt og appelsín.
*Skóli á morgun eða bara sleppa því og leyfa sér að færa þynkudaginn yfir á mánudag??
Hér koma svo myndir til að útskýra nánar viðburði helgarinnar.
Over and out!!